Seðlabankinn fær alla peningana okkar...

....þið vitið Davíð og co. Stjórn Seðlabanka fær semsagt yfirumsjón með peningunum sem við fáum fá alþjóðagjaldeyriskrappinu og fær að ráðstafa því nánast eins og hún vill. Með einhverjum annmörkum þó sem alþjóðagjaldeyriskrappið setur. Nú er mér allri lokið í þessu máli, sömu fávitarnir og sáu um það að Ísland varð eitt af fátækustu löndum í heimi fær peningana! Hvað er það!?! Maður er svona við það að gefast upp að hafa áhuga á að mótmæla, en nei við höldum áfram erþaggi? Já og svo þetta,

Lánið frá IMF nemur 2,1 milljarði dollara. Á grundvelli samkomulags íslenska ríkisins og IMF verða 827 milljónir dollara til taks nú þegar og afgangurinn í átta jöfnum millifærslum að fjárhæð 155 milljónir dollara hver. Lánið, rúmlega 2,1 milljarður dollara frá IMF og um þrír milljarðar dollara frá teymi þjóða sem ákváðu að lána, fer langleiðina með að mæta þörf ríkisins í endurreisn hagkerfisins og er liður í endurheimtingu trúverðugleika.

...liður í endurheimtingu trúverðuleika hahahahahahahahahahahahahaha.......................

peningarnir sem fara í námkvæmlega sömu hendur og peningarnir sem við áttum einu sinni voru í, eru ekki liður í endurheimtingu trúverðugleika. Landið okkar á eftir að þurfa að þola margt að ég held næstu árin og þarf að vinna upp traust á ný, en fær það ekki, a.m.k. ekki frá flestum ef ekki öllum íslendingum á meðan sama fólkið er við stjórnvölin. Ég vil kosningar og það strax, nýtt fólk og þeir sem fara fá engin eða a.m.k. mjög takmörkuð eftirlaun. Þetta fólk á ekki að fá fullt af peningum fyrir að hafa gert landinu okkar þessi spjöll. Nýtt Ísland Núna!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Allir að mótmæla á laugardaginn, bæði í Hljómalind og svo á Austurvelli.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnar Gunnlaugsson

Treysti Davíð manna best að passa að þessa peminga fyrir fjárglæframönnum eins og Baugsliðinu.

Ragnar Gunnlaugsson, 21.11.2008 kl. 10:29

2 Smámynd: Bryndís Ruth Gísladóttir

Hahahahaha..... enda eru það ekki þeir (baugsliðið), sem fá peningana beint í hendurnar, og það eru kannski síðustu hendurnar sem fá þessa peninga. Eeeeen, eftir síðustu ræðu Davíðs, þar sem hann er að skipta sér af stjórnmálum sem hann á að vera hlutlaus fyrir í dag sem seðlabankastjóri og þá sérstaklega varðandi núverandi ástands, og ummæli samstarfsmanna hans eftir þá ræðu, og bara það að hann er fyrrverandi forsætisráðherra og gegnir nú hlutverki seðlabankastjóra er einsdæmi í heiminum, og svo bara sú staðreynd að maðurinn nýtur ekki trausts hvorki hér á landi né utan þess. Það eru aðrir menn sem er betur treystandi fyrir þessum mikilvægu peningum. Hann á að víkja, og alls alls ekki að fá umráð yfir þessum peningum, hann er farin langt út fyrir sitt hlutverk í því sem hann er að segja í fjölmiðlum og það er bara eitt til ráða: DAVÍÐ BURT!

Bryndís Ruth Gísladóttir, 21.11.2008 kl. 12:34

3 identicon

Ég er ekki sátt við layoutið þitt, misstir alveg nokkur rokk-stig fyrir að vera man.utd kona... össsss... :P

Kristjana Birna (IP-tala skráð) 21.11.2008 kl. 12:50

4 Smámynd: Bryndís Ruth Gísladóttir

Ha! En ef þú vissir ekki þá eru þeir bestir, þúst þeir eru englands-og meistaradeildar meistarar, hmmmm.... ég sagði MEISTARAR :D Veit ekki hvað þú aðhyllist, en það er allavega pottþétt að þeir eru ekki MEISTARAR eins og man. utd. Takk og bless.

Bryndís Ruth Gísladóttir, 21.11.2008 kl. 12:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Bryndís Ruth Gísladóttir
Bryndís Ruth Gísladóttir

Bloggvinir

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband